Themabewertung:
  • 0 Bewertung(en) - 0 im Durchschnitt
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
Jóhann Sigurjónsson: Vorið er liðið, ilmur ungra daga...
#1
Jóhann Sigurjónsson
1880 - 1919 Island


Vorið er liðið, ilmur ungra daga
orðið að þungum, sterkum sumarhita,
æskan er horfin, engir draumar lita
ókomna tímans gráa sinuhaga.

Við erum fæddir úti á eyðiskaga,
eilífðarsjórinn hefur dimma vita,
fánýtar skeljar fyrir blóð og svita
fengum við keyptar, það er mannsins saga.

Þó hef ég aldrei elskað daginn heitar
eilífðarnafnið stafar barnsins tunga
fátæka líf! að þínum knjám ég krýp,

áþekkur skuggablómi, er ljóssins leitar,
leggurinn veldur naumast eigin þunga
fórnandi höndum þína geisla eg gríp.
Zitieren


Gehe zu:


Benutzer, die gerade dieses Thema anschauen: 1 Gast/Gäste
Forenfarbe auswählen: