III. CANADA.
Eg hugsa oft um hve hún var fráls og kát,
og hlýtt var skautið — mjúkur nakinn steinn.
Og mér finst sonur hennar aðeins einn:
með ör og boga, f jaðrir, tjald og bát.
En ráðhöll, kauphöll: réttar fyrirsát,
og ræktun landsins: okurvegur beinn.
í fjötur skatta flækt hver mær og sveinn,
svo framtíð skuldar það, sem nútíð át.-------
En ef hún nú, er Allra-manna-fold
og arfleitt hafa lögin Hvít að Rauð,
mér íslenzkt, rétt sem ensk, sú virðist Ynold,
sem óyrkt geymist hverjum farand-sauð.
Og hvar sem byggir lífs og látið hold,
sú lenda' og gröf, sé brot af heima auð.