Sonett-Forum
Jónas Hallgrímsson: Svo rís um aldir árið hvurt um sig, - Druckversion

+- Sonett-Forum (https://sonett-archiv.com/forum)
+-- Forum: Sonett-Archiv (https://sonett-archiv.com/forum/forumdisplay.php?fid=126)
+--- Forum: Sonette aus germanischen Sprachen (https://sonett-archiv.com/forum/forumdisplay.php?fid=394)
+---- Forum: Isländische Sonette (https://sonett-archiv.com/forum/forumdisplay.php?fid=463)
+---- Thema: Jónas Hallgrímsson: Svo rís um aldir árið hvurt um sig, (/showthread.php?tid=5970)



Jónas Hallgrímsson: Svo rís um aldir árið hvurt um sig, - ZaunköniG - 14.10.2007

Svo rís um aldir árið hvurt um sig,
eilífðar lítið blóm í skini hreinu;
mér er það svo sem ekki neitt í neinu,
því tíminn vill ei tengja sig við mig.

Eitt á eg samt, og annast vil eg þig,
hugur mín sjálfs í hjarta þoli vörðu,
er himin sér, og unir lágri jörðu,
og þykir ekki þokan voðalig.

Ég man þeir segja: hart á móti hörðu,
en heldur vil eg kenna [til] og lifa,
og þótt að nokkurt andstreymi ég bíði,

en liggja eins og leggur upp í vörðu,
sem lestastrákar taka þar og skrifa
og fylla, svo hann finnur ei --- af níði.

1.1.1845