Sonett-Forum
Jónas Hallgrímsson: Ég bið að heilsa! - Druckversion

+- Sonett-Forum (https://sonett-archiv.com/forum)
+-- Forum: Sonett-Archiv (https://sonett-archiv.com/forum/forumdisplay.php?fid=126)
+--- Forum: Sonette aus germanischen Sprachen (https://sonett-archiv.com/forum/forumdisplay.php?fid=394)
+---- Forum: Isländische Sonette (https://sonett-archiv.com/forum/forumdisplay.php?fid=463)
+---- Thema: Jónas Hallgrímsson: Ég bið að heilsa! (/showthread.php?tid=5969)



Jónas Hallgrímsson: Ég bið að heilsa! - ZaunköniG - 14.10.2007

Jónas Hallgrímsson
1807-1845

Ég bið að heilsa!

Nú andar suðrið sæla vindum þýðum,
á sjónum allar bárur smáar rísa
og flykkjast heim að fögru landi Ísa,
að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum.

Ó! heilsið öllum heima rómi blíðum
um hæð og sund í drottins ást og friði;
kyssi þið, bárur! bát á fiskimiði,
blási þið, vindar! hlýtt á kinnum fríðum.

Vorboðinn ljúfi! fuglinn trúr, sem fer
með fjaðrabliki háa vegaleysu
í sumardal að kveða kvæðin þín!

Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber
engil, með húfu og rauðan skúf, í peysu;
þröstur minn góður! það er stúlkan mín.